Það vekur undrun að engin umræða fer fram um 38 % þjóðarinnar sem ekki kaus í hinni „miklu“ þjóðaratkvæðagreiðslu. Þrjátíu og átta prósent er stór hluti þjóðarinnar. Hluti sem áreiðanlega hefur skoðun og mundi koma fram og kjósa ef hann teldi eitthvað þýðingarmikið væri um að kjósa.
Sextíu og þrír menn og ekkert gengur
Þriðjudagur 9. mars 2010 — Á tímum kreppu
Akurhæna með hnetum
Þriðjudagur 2. mars 2010 — Almennt
Sá á fasbókinni að séra Sigurður Árni Thordarson er í biblíugírnum í matargerð. Það er vel við hæfi. Hann sendi Nönnu Rögnvaldardóttur fyrirspurn um eldum á fuglakjöti.
Þroskasaga karla
Fimmtudagur 25. febrúar 2010 — Almennt
Fékk eftirfarandi í tölvupósti nýlega:
A group of 40 something guys discuss where they should
meet for dinner. Finally it is agreed that they will
meet at the Black Forest Inn because they have the
prettiest waitresses and low-cut blouses.
Hættið að ljúga, það er númer eitt
Mánudagur 22. febrúar 2010 — Á tímum kreppu
Það er í rauninni enginn vegur fyrir venjulegt fólk að mynda sér sannfærandi skoðun á þjóðmálunum á þessum vikum. Framboð af þvælu er svo gjörsamlega glórulaust að viðbrögð óbreyttra verða eins og þegar gengið er á glóðum. Það er gjörsamlega ómögulegt að standa í fæturna.
Þegar Jóhanna Sig talar
Laugardagur 6. febrúar 2010 — Almennt
Margir hafa látið í ljós mikla ánægju með svör og framkomu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í Kastljósi fyrr í vikunni. Er og nokkuð augljóst að gleðin sú er einkum yfir því hvað Jóhanna, að þeirra dómi, stóð sig með eindæmum illa.
Þegar Bjarni Ben talar
Fimmtudagur 4. febrúar 2010 — Almennt
Í hvert sinn sem ég heyri og eða sé Bjarna Ben, formann Sjálfstæðisflokksins, tjá sig í fjölmiðlum, fer mér að líka betur og betur við Steingrím Joð. Það er sérkennileg lífsreynsla.
Forsetinn, sáttin og froðan
Laugardagur 9. janúar 2010 — Á tímum kreppu
Margir héldu tæpast vatni þegar forsetinn neitaði að skrifa undir lögin frá Alþingi fyrir skemmstu. Alskyns stunur og andvörp heyrðust frá miklum fjölda manns sem lofaði Guð fyrir þennan dásamlega forseta, kjark hans og það hve samkvæmur sjálfum sér hann er. En er hann samkvæmur sjálfum sér?
Menningarlegt ágæti á nýju ári
Mánudagur 4. janúar 2010 — Bókmenntir
Við tókum ekki ákvörðun um að fara í sveitina fyrr en á nýársdagsmorgni. Hefðum betur farið daginn áður vegna hávaða og reykjarmakks. Ókum í fögru veðri áleiðis upp i Borgarfjörð á messutíma. Hvalfjörður eins og spegilgler. Ísing á veginum alla leiðina. Umferð lítil.
Þúsund jólaljós
Föstudagur 25. desember 2009 — Trúmál
Fyrir um það bil tuttugu árum íslenskaði ég þennan texta að beiðni Árna Arinbjarnarsonar, sem þá stjórnaði Fíladelfíukórnum í Reykjavík.
Mér finnst gaman að birta hann á jólunum.
Á pósthúsinu
Mánudagur 7. desember 2009 — Almennt
-Sæll og blessaður, kallaði pakkaafgreiðslumaðurinn yfir öxlina á stúlkunni sem afgreiddi mig. Hún fyllti út skýrslu um innihald pakkans sem ég var að pósta til systur minnar í Texas. Ég var einmitt að hrósa stúlkunni fyrir fallega rithönd.