Óli Ágústar

Sextíu og þrír menn og ekkert gengur
Það vekur undrun að engin umræða fer fram um 38 % þjóðarinnar sem ekki kaus í hinni „miklu“ þjóðaratkvæðagreiðslu. Þrjátíu og átta prósent er stór hluti þjóðarinnar. Hluti sem áreiðanlega hefur skoðun og mundi koma fram og kjósa ef hann teldi eitthvað þýðingarmikið væri um að kjósa.

Svo er að heyra að í umræðunni sé þetta fólk afgreitt sem „dauðar sálir“ sem engu máli skipti. Það er rangt viðhorf. Margt af þessu fólki hefur tiltölulega klára skoðun á málunum og hafnar því að hlaupa eftir froðusnakkinu sem úðað er yfir þjóðina í óöguðum tilfinningahita.

Margir hafa orðið til þess að lofa forseta landsins í hástert fyrir hans framgöngu á þessum dögum. Eru þar á meðal fólk sem hafði megnustu skömm á honum fram að því. Það er ekki enn komið í ljós hvort aðgerðir hans verða þjóðinni til góðs. Teikn benda til að það geti orðið tvíbent.

Ríkisstjórnin hefur ekki verið lánsöm í viðbrögðum við neitun forsetans. Mörg atriði í ákvörðun hennar eru gagnrýni verð. Það má þó ekki horfa framhjá því að flest atriði í kringum þetta bankahrun eiga sér ekki hliðstæðu í landinu og því ekki einfalt að finna bestu lausnirnar.

Froðusnakkið í stjórnarandstöðunni er með endemum. Í eyrum óbreyttra hljómar það sem skaðræðistal. Ef stjórnarandstaðan hefur vald á Alþingi til að koma í veg fyrir samninga, þá er auðvelt að álykta að hún hafi einnig vald til þess að láta samninga takast. Af hverju gerir hún það ekki?

Svo spyrja menn sig hvað töfin á samningunum kosti. Verður sá kostnaður meiri eða minni en sá ávinningur sem næst að lokum? Það er erfitt fyrir venjulegt fólk að greina kjarna máls af tali stjórnmálamanna.  Allur þeirra málflutningur bendir til að undir hverri ræðu búi allt önnur markmið en þau sem á yfirboðinu sjást.

Það er óviðunandi, fullkomlega óviðunandi, að bankarnir rísi upp margfalt sterkari en þeir voru fyrir hrun á sama tíma og tugir þúsunda almennings missi fótfestuna í lífinu. Það er engin leið að sætta sig við að upphrópunar frasarnir í munni stjórnmálamanna um nauðsyn þess að bjarga „heimilunum í landinu“ séu innantóm orð.

Sextíu og þrír menn sitja á Alþingi. Karlar og konur. Og ekkert gengur. Hvers á óbreyttur almúginn að gjalda af hálfu þessa liðs?

Akurhæna með hnetum
Sá á fasbókinni að séra Sigurður Árni Thordarson er í biblíugírnum í matargerð. Það er vel við hæfi. Hann sendi Nönnu Rögnvaldardóttur fyrirspurn um eldum á fuglakjöti.

Það er auðvitað glannalegt af mér, fákænum, að blanda mér í samræður tveggja sérfræðinga, þ.e.a.s. annars í biblíufræðum og hins í matargerð. Leyfi mér samt að skemmta mér við að vísa til 1. Samúelsbókar 26:20 og vona að hafa megi uppskriftina til hliðsjónar.

Akurhæna með hnetum

3 dl. Hvítvín

1,5 dl ólívuolía og 3 msk fuglafita

1 tsk malt koríander

2 msk hunang

5 sjallot laukar eða púrru

1 lárviðarblað

0.7 dl edik

2 tsk timían

Salt eftir smekk

6 akurhænur skipt í fjóra hluta

1 laukur í sneiðum

125 gr möndlur, valhnetur eða pistasíu hnetur eða blanda af öllum

1,5 dl döðlur, apríkósur eða þrúgubrennivín

Blandið saman olíu, víni, kóríander, hunangi, shalottlauk, lárviðarblaði, ediki, timíani og salti. Marinerið kjötið þar í í nokkra klukkutíma. Snúið kjötinu öðru hverju. Þurrkið síðan fuglana, geymið marineringuna.

Brúnið laukinn í feiti.  Einnig fuglakjötið. Lækkið síðan hitann  og eldið við vægan hita í 20 til 30 mínútur undir loki. Hitið marineringuna í öðru íláti. Steikið hneturnar. Hellið þrúguvíninum yfir fuglana þegar þeir eru orðnir mjúkir.  Hellið hnetunum yfir fuglana á diskunum.

Berið fram með ristuðu súrdeigsbrauði, grænu salati og hunangi.

Þroskasaga karla
Fékk eftirfarandi í tölvupósti nýlega:

A group of 40 something guys discuss where they should

meet for dinner. Finally it is agreed that they will

meet at the Black Forest Inn because they have the

prettiest waitresses and low-cut blouses.

Ten years later when the guys are 50 something, the group

again discusses where to meet. Finally it is agreed that

they will meet at the Black Forest Inn because the food

there is very good and they have a good wine selection.

Ten years later when the guys are 60 something, the group

again discusses where to meet. Finally it is agreed that

they should meet at the Black Forest Inn because it’s

quiet and smoke-free.

Ten years later when the guys are 70 something, the group

again discusses where to meet. Finally it is agreed that

they should meet at the Black Forest Inn because

the restaurant is wheelchair accessible and they have an

elevator.

Ten years later when the guys are 80 something, the group

again discusses where to meet. Finally it is agreed that

they should meet at the Black Forest Inn because they’ve

never been there before.

Hættið að ljúga, það er númer eitt
Það er í rauninni enginn vegur fyrir venjulegt fólk að mynda sér sannfærandi skoðun á þjóðmálunum á þessum vikum.  Framboð af þvælu er svo gjörsamlega glórulaust að viðbrögð óbreyttra verða eins og þegar gengið er á glóðum.  Það er gjörsamlega ómögulegt að standa í fæturna.

Það er ekki sanngjarnt að hræra svona í almenningi. Fullyrðingar og upplýsingar eru svo misvísandi að mönnum dettur helst í hug að hver einasti maður sem um þjóðmál fjallar sé að ljúga. Og það vísvitandi.  Hvernig í ósköpunum stendur á þessu? Hvað hefur almenningur gert af sér að verðskulda slíkan framgang?

Það eina sem virðist vera í hendi er að bankarnir fitna og fitna eins og andskotinn á fjósbitanum. Bankaráðsmenn og klíkurnar á bak við þá draga til sín allt blóð þjóðarinnar og almenningi er hótað þjóðargjaldþroti.  Af hverju talar enginn maður, karl eða kona, á þann veg að við dauðu sálirnar eygjum einhverstaðar möguleika á að komast af?

Sturla Böðvarsson segir í Pressunni að landið sé stjórnlaust og að Bjarni Ben og Sigmundur verði  að vera tilbúnir að taka við til að koma þjóðarskútunni á réttan kjöl. Hvað kjölur er það sem er hinn rétti í heilabúinu í Sturlu? Er það kjölurinn sem skútan sigldi á til helvítis 2008?

Miðað við yfirlýsingar þerra kumpána, Bjarna og Sigmundar að undarförnu, þá sýnist manni að þeir viti ekki einu sinni hvað kjölur er. Og þeir eru ekki einir um það. Svo er að sjá, því miður, að Jóhanna og Steingrímur séu ekki klár á því heldur.

Ástandið  er ekki í lagi. Fólk verður að taka sig saman og finna lausn. Til þess var það kosið.  Öll lofuðu þau að  hafa allt uppi á borðunum, gagnsætt og auðskilið. En til þess svo verði þarf fólk að hætta að ljúga. Það er númer eitt.

Þegar Jóhanna Sig talar
Margir hafa látið í ljós mikla ánægju með svör og framkomu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra, í Kastljósi fyrr í vikunni.  Er og nokkuð augljóst að gleðin sú er einkum yfir því hvað Jóhanna, að þeirra dómi,  stóð sig með eindæmum illa.

Morgunblaðið er einkar hamingjusamt með þáttinn og eyðir talsverðu púðri í að skilgreina vanhæfni Jóhönnu fyrir lesendum sínum. Sá ágæti maður, Styrmir Gunnarsson, orðar það þannig í Sunnudagsmogganum, þegar hann talar um Kastljósþáttinn; „.…sýndi að í þessum efnum (atvinnuuppbyggingu) hefur forsætisráðherra ekkert fram að færa.“

Það er ekki auðvelt fyrir venjulegt fólk að greina staðreyndir í orðum stjórnmálamanna. Það er augljóst að þeir tala að minnsta kosti tveim tungum og ætla orðum sínum að sannfæra kjósendur um eitthvað annað en raunverulega stöðu mála. Það getur því verið skynsamlegt fyrir ráðamenn að hafa sem fæst orð um ágæti sitt og auðveldar lausnir.

Því miður fær almenningur aldrei að sjá á öll spilin hjá stjórnmálamönnum. Þannig var það í tíð fyrri ríkisstjórna. Þeirra sem sigldu þjóðarskútunni  í kaf. Þannig er það einnig með núverandi ríkisstjórn og erfitt að átta sig á hvert hún stefnir. Slík taktík er eins og hvert annað böl undir sólinni.

Hvað sem sagt er um núverandi ríkisstjórn þá liggur ljóst fyrir að hún er kosin af þjóðinni til að stjórna landinu. Og hvort sem henni tekst bærilega eða ekki, þá eru engar líkur á að stjórnarandstöðunni tækist betur upp, því að á bak við hana standa öflugir hagsmunahópar sem vilja eiga Ísland og afkomu þjóðarinnar eins og þeir áttu árum saman.

Þegar sólin er lágt á lofti verða skuggarnir langir. Venjulegt fólk verður að glíma við lífið í þessum skuggum. Það er ekki auðvelt. Ríkisstjórnin má ekki gleyma orðum sínum um ,,fólkið og heimilin í landinu.“ Það er vandi að heita vinstri stjórn, ..„og hafa ekki til þess unnið.“

Þegar Bjarni Ben talar
Í hvert sinn sem ég heyri og eða sé Bjarna Ben, formann Sjálfstæðisflokksins, tjá sig í fjölmiðlum, fer mér að líka betur og betur við Steingrím Joð. Það er sérkennileg lífsreynsla.

Í Kastljósinu í fyrrakvöld reyndi ég að hlusta á svör Jóhönnu Sigurðardóttur. Spyrillinn greip stöðugt fram í fyrir Jóhönnu þegar hún reyndi að svara. Ég fékk á tilfinninguna að fréttamanninum væri meira í mun að sýna fram á hve snjall spyrill hún væri heldur en að svör Jóhönnu skiluðu sér.

Mogginn í dag hefur mikið vit á því hvað Jóhanna Sigurðardóttir er lélegur stjórnmálamaður.  Kemur það fram á fleiri en einum stað. Ég tel það vera hrós um Jóhönnu að Mogginn telji sig þurfa að eyða svo miklu púðri  til að draga úr trúverðugleika hennar.

Síendurtekin krafa Bjarna Benediktssonar um þverpólitíska sátt er varla nokkuð sem hann hefur lært í flokknum sínum, né heldur ábúðarmikil yfirlýsing þeirra félaga, Bjarna og Sigmundar, um óþolinmæðina. En það er alltaf frískandi að heyra orð sem fá mann til að hlægja.

Forsetinn, sáttin og froðan
Margir héldu tæpast vatni  þegar forsetinn neitaði að skrifa undir lögin frá Alþingi fyrir skemmstu. Alskyns stunur og andvörp heyrðust frá miklum fjölda manns sem lofaði Guð fyrir þennan dásamlega forseta, kjark hans og það hve samkvæmur sjálfum sér hann er. En er hann samkvæmur sjálfum sér?

Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðisflokksins, ritar grein í Fréttablaðið í dag og sýnir þar fram á að forsetinn er alls ekki samkvæmur sjálfum sér í rökstuðningi sínum. Það er lærdómsríkt að lesa grein Þorsteins en hann kemst að eftirfarandi niðurstöðu eftir að hafa bent á nokkur dæmi um röksemdir forsetans í fyrri málum:

,,…Nú kemur enn nýr rökstuðningur um að valdið sé hjá forsetanum og þjóðinni en ekki Alþingi. Af þessu má sjá að forsetinn hefur aldrei verið samkvæmur sjálfum sér í rökstuðningi sínum.“

Orðræða og hávaði stjórnarandstöðunnar einkennist þessa daga af því sem hún kallar þrá hennar eftir sátt og samstarfi við ríkisstjórnina í Icesave málinu. Hún hrópar og stappar niður fótum yfir því að ríkisstjórnin slái á „,útrétta sáttarhönd.“

Einföldum verkamanni verður á að spyrja hverjir það hafi verið sem allt síðasta ár, með ótrúlega óbilgjarnri og gagnslausri orðafroðu, ólu af sér og ræktuðu það ósætti sem nú er talið  aðalsynd ríkisstjórnarinnar.

Víst er stjórnarandstaðan komin í hring í öllu þessu Icesave máli og eltir á sér skottið eins unglingshvolpur á bæjarstétt. Nú vill hún endilega fá að vera með í að leysa málið og vafalítið er það til þess að koma hagsmunum flokkseigenda sinna að.

Það er stöðugt undrunarefni hvað stjórnmálamenn geta framleitt mikla froðu. Froðu sem á stuttum tíma hjaðnar og hverfur því að hún var að eiginlega ekkert nema loft.

Menningarlegt ágæti á nýju ári
Við tókum ekki ákvörðun um að fara í sveitina fyrr en á nýársdagsmorgni.  Hefðum betur farið daginn áður vegna hávaða og reykjarmakks.  Ókum í fögru veðri áleiðis upp i Borgarfjörð á messutíma. Hvalfjörður eins og spegilgler. Ísing á veginum alla leiðina. Umferð lítil.

Við hlýddum á útvarpsmessu frá Dómkirkjunni og nutum góðrar ræðu biskupsins, herra Karls Sigurbjörnssonar. Bíll, næstur á eftir okkur, var kominn skuggalega nærri afturstuðaranum á okkar bíl  þegar við ókum hjá móteli Venusi og annar á hæla honum. Gaf ég stefnuljós norður Borgarfjarðarbraut því tímanlega og dró úr hraðanum.

Kom nú vel í ljós hve hálkan var mikil því bíllinn neitaði að hægja á og mátti svo sem engu muna að við færum þvert yfir Borgarfjarðarbrautina og út af. En sluppum með skrekkinn. Frostið á leiðinni var á bilinu níu til fimmtán gráður og ísing út á ystu vegabrúnir. Það var stillilogn og héraðið baðað í nýárssól. Fjörðurinn  lagður.

Við komuna í kofann okkar hlýddum við á Ólaf forseta flytja áramótaræðu sína. Orð hans um ráðningu dómara við dómskerfi landsins voru athyglisverð. Hugðist ég lesa ræðu hans í Morgunblaðinu í dag en þar er hún ekki. Sama má segja um ræðu Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra. Hún er þar ekki heldur.

Mig minnir að undanfarin ár hafi ræður þeirra þriggja, biskups, forseta og forsætisráðherra, ávallt  verið birtar í heild sinni í fyrsta blaði Morgunblaðsins á nýju ári. Nú halda aðrir ritstjórar á pennum þar. Um kaffileytið horfðum við á glæsilega Nýárstónleika í Vínarborg sem sýndir voru í sjónvarpi og hin þokkafulla Meryl Streep gantaðist um kvöldið.

Að venju höfðum við bókatöskuna með. Ásta sökkti sér í Böðvar frá Kirkjubóli og mátti ekkert vera að því að hlusta á mig þegar ég gat ekki orða bundist yfir ýmsum beinskeyttum setningum Ragnars í Smára. Bæði vorum við sæl með bækurnar okkar.

Við hlýddum á vísnaþátt Iðunnar áttræðrar og loks þátt Eiríks Guðmundssonar um Umbreytingar Publiusar Ovidiusar Naso í þýðingu Kristjáns Árnasonar.  Sterk löngun hafði gripið mig fyrir jólin til að eignast bókina en eftir þáttinn þróaðist sú löngun í girnd. Hefur bókinni þegar verið áætlaður staður við hlið þeirra Hómers og Eneasars.

Ein af perlum Rásar eitt eru  þættir þeirra Ævars Kjartanssonar og Páls Skúlasonar á sunnudagsmorgnum, Heimur hugmyndanna. Verð að segja að mér þykja þeir með því albesta sem útvarpið býður upp á þessi misserin.

Þessir þrír fyrstu dagar ársins i lífi okkar Ástu minnar voru með svoddan miklum menningarlegum ágætum að ég get einfaldlega ekki orða bundist. Og ef árið verður í svipuðum anda þrátt fyrir ört minnkandi afkomu og kjör þá er okkur eiginlega ekki vorkunn. Að svo stöddu. Ég þvaðra þetta af einskærri gleði yfir góðri byrjun á nýju ári. Þrátt fyrir allt.

Þúsund jólaljós
Fyrir um það bil tuttugu árum íslenskaði ég þennan texta að beiðni Árna Arinbjarnarsonar, sem þá stjórnaði Fíladelfíukórnum í Reykjavík.

Mér finnst gaman að birta hann á jólunum.

Þúsund jólaljós

Nú þúsund jóla loga ljós

og lýsa mönnum skær.

Þau Drottni flytja dýrðarhrós

og dapra gleði nær.

Og vítt um heim og byggt hvert ból

er bjart og hlýtt í kvöld.

Í fjárhúsjötu friðarsól

er fædd og sest við völd.

Hjá Betlehem þín stjarna stóð

og steig þín elska hæst.

Þar veitti döprum vonarglóð,

þín viska dýrðar glæst.

Ó, faðir, send þú fátækum

þitt friðarljósa skin.

Og sætan gef þú syrgjendum

þinn son að einkavin.

Emmy Köhler – Óli Ágústar

Á pósthúsinu
-Sæll og blessaður, kallaði pakkaafgreiðslumaðurinn yfir öxlina á stúlkunni sem afgreiddi mig. Hún fyllti út skýrslu um innihald pakkans sem ég var að pósta til systur minnar í Texas. Ég var einmitt að hrósa stúlkunni fyrir fallega rithönd.

Ég heilsaði manninum. Fannst hann samt trufla mig. En hann var glaðhlakkalegur. -Langt síðan við höfum sést,- hélt hann áfram. Nú var ég að reyna að segja stúlkunni hvað innihald pakkans var. – Xmas gifts, Home made candy. Bush setti reglur um það eftir Tvíburaturnana. Pakkamaðurinn lét sig ekki.

Nú töluðu þau við mig bæði í einu. Það er óþægilegt. Ég snéri mér að manninum. –Þú ert enn með alskegg,- sagði ég. –Já, Það vex nú bara þarna, sagði hann og bætti við – Hafið þið það gott hjónin? -Mjög gott, svaraði ég. –Og frúin líka? bætti hann við í spurnartón. –Ég hef það betra en hún, svaraði ég. Hann leit framan í mig og sagði, -Nú? –Já. Ég bý með henni.

Póstkostnaðurinn var svipað hár og verðmæti innihalds pakkans.