Um hádegisbil í gær leit ég út um glugga upp úr blöðum og bókum og fegurðin í litunum sem við blöstu kölluðu mig út í bókstaflegri merkingu.
Færslur í flokknum 'Ljósmyndir' ↓
Á eyðilegri heiði – á jaðri borgar
6. september 2009 — Almennt og Ljósmyndir
Í skjóli við ungan birkibol…
30. ágúst 2009 — Almennt og Ljósmyndir
Það var um sjöleytið í gærmorgun. Ég fór í örstutta gönguferð í kringum litla kofann okkar. Í skjóli við einn útvörðinn gat að líta þessa stjúpu, skærgula og glæsilega. Hún verkaði eins og ljósgjafi fyrir daginn sem reyndist verða einn af þeim ljúfustu á sumrinu. Þó var norðaustan tíu til fimmtán og hitinn aðeins sjö gráður.
Nostos, blóm og myndir
29. júní 2009 — Almennt og Ljósmyndir
Liðin helgi einkenndist af veðurblíðu. Við nutum þess út í æsar, gamla settið, uppi í Borgarfirði að vanda. Þangað leitum við sífellt. Kannski er það nostalgía, nostos á grísku, að snúa heim eða til baka. Eða þá þrá eftir endurhljómi tilfinninga sem hófust í æsku og bjó um sig í hjörtunum. Það er ekki einfalt að orða þetta.
Kappróður í rigningu
8. júní 2009 — Almennt og Ljósmyndir
Það er ekki nema sjálfsagt að sem flestir verði sjómenn á sjómannadaginn. Við ákváðum, ég og gamla mín, að fara til Reykjavíkur og taka þátt. Aðalhvatinn var samt kappróðurinn, en við erum svo heppin að ein færeysku valkyrjanna í færeyska liðinu sem sigrað hefur undanfarin ár, er tengdadóttir okkar. Og auðvitað reynum við að styðja okkar fólk.
564 með adagio
23. maí 2009 — Almennt, Ljósmyndir og Tónlist
Það var ekki fyrr en í þessari viku sem ég loksins braut regluna. Hún var sú að taka ekki Bach með í bílinn. Paganini var eiginlega eini sígildi höfundurinn sem ég dró með mér niður á það plan. Þangað til í fyrradag. Þá féll ég. Svo ók ég umhverfis Reykjavík. Þetta var á uppstigningadag.
Á heimleið í dag og hestarnir við síkið
17. maí 2009 — Almennt og Ljósmyndir
Maríuerluparið hamaðist við hreiðurgerð. Þóttumst við þekkja ættarsvipinn á þeim, að hér væru ömmubörn fyrsta parsins sem bjó undir þakskeggi kofans eitt sumarið. Og brostum í kampinn. Héldum svo heimleiðis í dag. Hina leiðina.
Bandaskórnir, myndavélin og kyrrðin
15. apríl 2009 — Almennt og Ljósmyndir
Þetta er fyrsti dagurinn sem vorið kom upp í gegnum iljarnar. Hefur þú fundið það? Þess vegna dustaði ég rykið af bandaskónum mínum og fór niður í Sundahöfn. Ætlaði að tala við æðarfuglinn. Hann lét ekki truflast. Alltaf jafn heimspekilega sinnaður.
Í dag – og græna myndin
3. apríl 2009 — Horft um öxl og Ljósmyndir
Í dag fer ég til baka í huganum. Fyrst um átta ár. Þá gengum við Ásta í æskuspor okkar sjálfra. Í ágústbyrjun. Gróðurinn á hátindi blómans. Það var mikið regn. Vatnið sat í haugum á gróðrinum. Slóð kom eftir fætur okkar. Í einni bóka Halldórs Laxness segir að grasið væri svo grænt að sýndist vera blátt. Þetta var þannig dagur.
Fátt til að lifa fyrir II
20. janúar 2009 — Almennt og Ljósmyndir
Hún er þekkt frásagan af föngunum tveim sem horfðu út um rimlagluggana á klefum sínum. Annar horfði niður, sá aðeins drullupollana fyrir utan og formælti þeim. Hinn horfði upp, sá stjörnubjartan himinn og gladdist yfir fegurð stjarnanna. Af þessu má læra.
Ljósið í myrkrinu
25. desember 2008 — Almennt og Ljósmyndir
Ágúst Ólason sendi okkur Ástu þessa frábæru mynd með jólakveðju sinni til okkar. Myndina tók hann í aðdraganda jóla.