Aldrei hef ég heyrt furðulegra tal um frásögn guðspjallanna af aðdraganda og fæðingu frelsarans en það sem birtist í viðtali í sjónvarpi í vikunni. Viðtalið var við aðalleikarana í leikritinu Jesús litli. Vissulega er mörg umræðan í fjölmiðlum um þessi mál sérkennileg og kjánalegt að vera að undra sig á þeim. Stundum rúma færri orð meiri dýpt en fleiri.
Jesús litli, Styrmir og fjósin og heimspeki
Sunnudagur 6. desember 2009 — Almennt
Aflsmunur
Föstudagur 4. desember 2009 — Almennt
Þegar konan hans var búin að lesa forsíðu blaðsins sem hékk uppi við kassann, benti hún á mynd á forsíðunni og spurði manninn sem með henni var: „Er þetta ekki hún Jóna, Jóna hans Bjarna hennar Siggu?“ Maðurinn leit ekki upp. Hann var önnum kafinn við að setja vörur í poka og poka í innkaupakerru.
Farðu með gát gamli maður
Fimmtudagur 3. desember 2009 — Almennt
Maður vaknar með lag í hausnum. Old man river. Og hugsar til Paul Robeson. Svarta bassasöngvarans. Old man river. Stefnumót við læknasetur er á dagskrá. Há og grönn stúlka og snör í hreyfingum kallar nafnið manns. Í línurit.
Þorgerður Katrín og klyfjarnar
Föstudagur 13. nóvember 2009 — Almennt og Á tímum kreppu
Það er með miklum ólíkindum hvað fólk getur verið seinheppið. Þorgerður Katrín skrifar grein í Morgunblaðið í dag. Þar segir: „…þær klyfjar sem ríkisstjórnin leggur á fólk og fyrirtæki mega ekki verða til þess að fólk kikni undan þeim.“
Færeysk vinsemd og kurteisi
Þriðjudagur 10. nóvember 2009 — Almennt
Tvær íslenskar konur á sextugsaldri fóru í helgarferð til kaupmannahafnar nýlega. Markmiðið var að aftengjast daglegum erli og störfum hér heima, skoða í verslanir og hafa huggulegar kvöldstundir.
Svartir hundar og sól
Mánudagur 9. nóvember 2009 — Almennt
Maður veltir fyrir sér hvaðan þeir koma, svörtu hundarnir. Koma þeir hugsanlega úr bjarmanum af svartri sól. Það getur varla verið bjarmi af svartri sól.
Æfingin og samlyndið
Föstudagur 6. nóvember 2009 — Almennt
Eftir að hafa ræktað alskegg í andlitinu um áratuga skeið, með sárafáum hvíldum, kostar það allnokkur átök að ákveða að farga gróðrinum. Ákvörðunin tók viku þetta skiptið. Hafði þá farið í spegilinn aftur og aftur og spjallað við andlitið um málið.
Maður með þrjá innkaupapoka
Fimmtudagur 5. nóvember 2009 — Almennt
Allt í einu varð eins og veröldin brjálaðist. Ég var í sakleysi mínu að setja þrjá innkaupapoka í aftursætið á mínum bíl þegar tveir hundar í bíl við hliðina á mínum urðu gjörsamlega trítilvitlausir. Þeir geltu og urruðu og hentust fram og aftur í bílnum og ég gat ekki betur séð en það væri ég sem fór svona í taugarnar á þeim.
Vonbrigði með Mogga og pólitík
Mánudagur 2. nóvember 2009 — Almennt og Á tímum kreppu
Vissulega er ekki komin reynsla á Sunnudagsmoggann. En hann fer skringilega af stað. Það var alltaf þannig að þegar við hjónakornin höfðum verið um helgi úti á landi þá hlakkaði ég ævinlega til þess að koma höndum á laugardagsmoggann og Lesbókina.
Önnur myndin er gáta
Sunnudagur 1. nóvember 2009 — Almennt
Helgin hafði verið svo elskuleg í litla kofanum okkar Ástu. Föstudagur einkenndist af suðaustan átt og rigningu. Laugardagur af suðvestan átt og rigningu. Hvað er hægt að hugsa sér ánægjulegra þegar maður drekkur í sig refsingarbrjálsemi Raskolnikofs. Rodja.